Andlitsmeðferðir

Hjá Abaco Derma bjóðum við upp á fjölbreyttar andlitsmeðferðir fyrir allar húðtýpur með ólíkar áherslur. Allt frá róandi hreinsimeðferðum til sérhæfðra Guinot meðferða sem vinna gegn öldrun, auka raka og bæta áferð.

Fagleg nálgun

Með faglegri nálgun og einstaklingsmiðaðri ráðgjöf tryggjum við bestu útkomuna fyrir húðina þína og þínar væntingar. Snyrtifræðingar okkar meta húðina þína og mæla með réttri meðferð og vörum.

Andlitsmeðferð 30 mín

Slakandi meðferð með yfirborðshreinsun, djúphreinsun, nudd og maska.

Andlitsmeðferð 60 mín

Heildræn og róandi meðferð; yfirborðshreinsun, djúphreinsun, nudd og maski.

Andlitsmeðferð með litun og plokkun/vax 90 mín

Ítarleg meðferð með yfirborðshreinsun, djúphreinsun, litun og plokkun eða vaxi, nudd og maski.

Húðhreinsun 50 mín

Meðferð með áherslu á djúpa hreinsun húðar, undirbúning fyrir kreistun, fjarlæging óhreininda og maski í lokin. Inniheldur ráðgjöf um húðumhirðu.

Húðhreinsun fyrir unglinga 50 mín

Sérhæfð hreinsimeðferð fyrir unglingahúð með ráðgjöf um daglega húðumhirðu, undirbúning fyrir og framkvæmd kreistunar og maski í lokin.

Guinot Hydradermie 60 mín

Árangursrík djúphreinsandi og rakagefandi meðferð fyrir andlit, háls og bringu. Örvar efnaskipti, bætir raka og áferð húðar, stuðlar að endurnýjun frumna og hentar vel gegn bóluhúð.

Guinot Hydradermie Lift

Meðferð sem sameinar vöðva- og sogæðaörvun með andlits- og herðanudd.Eykur stinnleika og sléttir útlit, dregur úr þrota og eykur hreinsun húðarinnar.

Guinot Age Summum

Áhrifarík meðferð gegn ótímabærri öldrun; örvar endurnýjun húðfrumna, þéttir og stinnir húðvefi. Inniheldur andlits-, bringu- og herðanudd.

Guinot ávaxtasýrumeðferð (Hydra Peeling)

Endurnýjandi og ljómandi meðferð með ávaxtasýrum; djúphreinsar, eykur raka, sléttir áferð og dregur úr öldrunarblettum.