Microblading - Varanleg förðun á augabrúnir
Hvað er Microblading?
Microblading er varanleg förðun á augabrúnir og er gömul japönsk tækni sem hefur verið notuð í marga áratugi. Notað er handtól með örfínum nálum til að gera mjóar línur sem líkjast hárum og farið er grynnra í húðina en venjulegt tattoo. Farið er milli háranna til að þykkja og móta augabrúnina. Ef lítið er af hárum fyrir þá eru gerðar fleiri línur til að byggja upp augabrúnina og gera hana sem náttúrulegasta.
Marín Birnisdóttir snyrtifræðingur
Marín er menntaður snyrtifræðingur með diploma frá karmapro í microblading. Hún leggur áherslu á náttúrulegt útlit, vandaða vinnu og persónulega þjónustu.

Er microblading fyrir alla?
Já. Meðferðin er fyrir bæði kynin, konur og karla, og þarf að vera orðin 18 ára. Hentar sérstaklega vel fyrir:
- Fólk sem hefur lítið af hárum í augabrúnunum, eða engin hár
- Þá sem vilja fá mótun á augabrúnirnar
- Þá sem stunda mikið af íþróttum
- Þá sem vilja spara sér 10-15 mínútur á dag að teikna brúnir upp
- Þá sem sjá illa
Athugið:
Ef þú ert með feita húð á meðferðarsvæðinu þá er mælt með að nota tattoo vél frekar en microblading tækni.
Ef þú ert með gamalt tattoo eða microblade eftir annan getur þú komið í lagfæringu hjá Marín ef tattooið er yngra en 3 ára. Ef það er eldra getur þú komið í nýtt microblade.
Hvernig fer meðferðin fram?
- Viðtal og undirbúningur - Þú fyllir út spurningalista um heilsu þína
- Myndataka og teikning - Teikna upp og móta augabrúnirnar í samráði við þig
- Meðferð - Þú ert ekki deyfð/ur í fyrstu lotu og finnur lítið sem ekkert til
- Deyfingin - Eftir fyrstu umferðina ertu deyfð/ur og finnur ekkert til eftir það
- Eftirmeðferð - Að meðferð lokinni færðu upplýsingar um eftirmeðferð og krem með þér heim
- Lagfæring - Eftir 4-6 vikur kemur þú aftur í lagfæringu
Af hverju þarf að koma tvisvar fyrst?
Ef þú ert að koma í fyrsta skiptið í microblading þá þarftu að koma tvisvar með 4-6 vikna millibili. Endurkoman er innifalin (oftast kölluð sem leiðrétting). Microblading verður ekki fullkomið fyrr en eftir endurkomuna.
Athugið: Liturinn verður mjög dökkur fyrstu dagana þegar líkamsvessi, blóð og tattoo litur oxast við súrefnið og harðnar. Oftast myndast hrúður sem ekki má kroppa af - við viljum að það flagni af sjálfu sér. Í gróandaferlinu lýsist tattooið um 30-40% þar sem farið er mjög grunnt í efsta lag húðar.
Hvað dugir microblading lengi?
Mælt er með að koma aftur 12 til 18 mánuðum seinna til að skerpa á litnum og viðhalda tattooinu fersku og fallegu.
Þarf ég að gera eitthvað áður en ég kem?
- Mælt með að plokka/vaxa brúnir lágmark 3 dögum áður
- Best að hafa hárin í sínum náttúrlega lit nema þú viljir hafa þær dökkar
- Koma óförðuð og með hreint hár
Hvað tekur meðferðin langan tíma?
- Fyrsta koma: 1½ klst (viðtal, myndataka, mótun brúna, meðferð, upplýsingar um umhirðu heima)
- Endurkoma eftir 4-6 vikur: 1 klst
Hver er eftirmeðferðin?
Þú færð nákvæmlegar leiðbeiningar um heimameðferð og krem.
Ekki má fyrstu 10-15 dagana:
- Fara í ljós, sólbað, sund, heitan pott, gufu eða bað
- Fara í ræktina
- Bleyta tattooið (má fara í sturtu en passa að bleyta ekki tattooið)
- Koma við tattooið - hreinlæti er mikilvægt, þvo hendur og spritta vel
Hvaða tattoo litir eru notaðir?
Eingöngu eru notaðir náttúrulegir litir án allra skaðlegra efna. Litirnir halda sér en dofna með tímanum. Hversu fljótt fer eftir húðgerð, efnaskiptum, meðferð á húð, ef þú notar ýmis krem og sýrur, ert mikið í sól, útveru, sundi og æfir mikið.